Norræn vefgátt um almannatryggingar

Þessi vefgátt er gerð af yfirvöldum um almannatryggingar á Norðurlöndunum.

Vefgáttin er ætluð þeim sem  flytja og/eða stunda atvinnu eða sækja nám til Norðurlandanna. Vefgáttinni er ætlað að veita leiðbeiningar um hvaða landslög eiga við í hverju tilviki. Einnig er að finna upplýsingar um ýmsar greiðslur sem viðkomandi kann að eiga rétt á. Á vefgáttinni  er hægt að finna hlutaðeigandi yfirvöld í viðkomandi landi og krækjur til þeirra.
Í kynningarritinu „Hvað gerist þegar þú flytur á milli norrænna landa.  Almannatryggingar og félagslegar bætur “ er að finna hagnýtar upplýsingar og útskýringar á reglunum.
Frekari upplýsingar er að finna á næstu síðum vefgáttarinnar.